3.7.2008 | 20:28
Ljónið kvatt!
Á morgun á ég ekki lengur bíl. Litla sæta og þjónustuglaða ljónið mitt er ónýtt, óökufært og samankýttað. Stendur nú í hópi annarra ólánsamra ökutækja í tjónaskoðunarstöð VÍS og bíður örlaga sinna. Fór þangað í dag og hirti ýmislegt smálegt úr honum. Tók snjóburstann minn og sólgleraugun og fann svo rauða regnhlíf sem ég var búin að gleyma og gamalla ráðstefnupappíra. Vona bara að ekkert hafi verið í skottinu því það var ekki nokkur leið að opna það. Þetta var alveg eðalbíll með splunkunýjan vatnskassa, nýástandsskoðaður og bara ekinn 30700 km. Verður erfitt að finna annan sambærilegan....snökt snökt.
Annars heldur sumarfríið bara áfram með tilheyrandi leti og viðsnúningi á sólarhringnum. Er nú samt búin að afreka að pota niður nokkrum sumarblómum, taka nokkra rúnta og sinna lasarusunum í fjölskyldunni og knúsa Ídu Maríu Steinunnarsysturdóttur alveg ómælt. Verður hér heima í tvær vikur í viðbót en annars alveg óvíst hvenær ég fæ færi á að knúsa hana aftur. Ótrúlega yndislegt að hitta hana loksins. Skrýtið að geta saknað einhvers sem maður hefur aldrei hitt og svo er hún bara í fanginu á manni og alveg jafn ótrúlega yndisleg og allar myndirnar af henni.
Svo á ég nú bara ekki til orð yfir verðlaginu í þessu blessaða þjóðfélagi okkar. Hvernig getur t.d. einn Camenbertostur hækkað um 50 kr. á nokkrum vikum. Hvað réttlætir eiginlega þessar ótrúlegu verðhækkanir á einu og öllu. Ekki hækka launin í samræmi við aðrar hækkanir.......það er nú alveg ljóst. Svo er bara verið að spá bongoblíðu um helgina og þá er hægt að taka fram USA hlýrabolina og spranga um í blíðunni.........
Athugasemdir
Elsku bestasta dúlla! Ég samhryggist vegna ljónsins! Hafðu það samt ótrúlega gott í sumarfríinu.
verðlagið ... andskotans helvítis djöfulsins verðlagið. Staðan eftir þessi mánaðamót hjá mér var einföld: aldrei fengið lægri laun og allt er orðið dýrara - go figure!
Knús og sólarkveðjur á þig!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 22:57
Mynturnar komnar - þú ert gull og bestust!!!! Takk!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 11:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.